Hægindasófar
SIMONA er hvíldarsófi með rafstillanlegum skammelum og höfuðpúðum. Bak getur hallast aftur þó sófi standi nánast við vegg. Rafstillanlegir höfuðpúðar auka þægindin með réttum stuðning við háls og höfuð. Miðsæti einnig með rafstillanlegu skammeli og höfuðpúða. Innbyggt USB tengi í rofa fyrir hleðslu á helstu símum og snjalltækjum. Alklæddur leðri eða í vönduðu áklæði, helstu litir eru til á lager, en hægt að sérpanta úr miklu úrvali af litum/leðri/áklæði. SIMONA er fáanlegur sem 2.sæta, 3.sæta, 4.sæta, 5.sæta, o.sfv. SIMONA kemur einnig sem hvíldarstóll.